Fréttir

August 31, 2026
Um stuðning, aðlögun, þátt foreldra og hvað hægt er að gera ef stuðningurinn dugar ekki. Börn geta þurft stuðning í skóla af ólíkum ástæðum og með ólíkum hætti. Hér er fjallað um réttindi barna sem þurfa stuðning vegna tal- eða málþroskaröskunar. Umfjöllunin á meðal annars við um málþroskaröskun DLD og málhljóðaraskanir, svo sem CAS . Tal- eða málþroskaröskun getur haft áhrif á ólíka þætti skólagöngunnar. Sum börn þurfa stuðning við að skilja munnleg fyrirmæli, tileinka sér ný orð og hugtök eða koma þekkingu sinni á framfæri. Hjá öðrum getur þörfin fremur tengst tali, málhljóðum eða því að gera sig skiljanleg. Stuðningsþörf getur einnig komið fram í lestri, ritun, hópavinnu og félagslegum samskiptum. Þess vegna skiptir máli að horfa á hvernig barninu gengur í daglegu skólastarfi og hvaða stuðning það þarf , en ekki eingöngu hvaða greining liggur fyrir. Barnið á rétt á kennslu við sitt hæfi Samkvæmt lögum um grunnskóla eiga allir nemendur rétt á kennslu við sitt hæfi í námsumhverfi sem tekur mið af þörfum þeirra og vellíðan. Nemendur eiga jafnframt rétt á því að komið sé til móts við námsþarfir þeirra í almennum grunnskóla. Þeir sem þurfa sérstakan stuðning eiga rétt á honum í samræmi við metnar stuðningsþarfir. Fyrir barn sem þarf stuðning vegna tal- eða málþroskaröskunar þýðir þetta að skólinn þarf að meta hvaða áhrif stuðningsþörfin hefur á nám og þátttöku barnsins og hvernig best verði komið til móts við hana. Ekki þarf alltaf að bíða eftir greiningu Greining getur verið mikilvæg til að skýra þarfir barns og styðja við skipulag þjónustu. Hún á þó ekki að verða til þess að viðeigandi stuðningi sé frestað þegar þörfin er þegar sýnileg í skólastarfinu. Skólum ber að meta hvaða nemendur þurfa aðstoð, bregðast við með kerfisbundnum hætti og fylgjast með framförum. Foreldrar geta einnig sjálfir óskað eftir sérstökum stuðningi fyrir barn sitt við umsjónarkennara eða skólastjórnendur. Meginatriðið er því að stuðningur byggist á þörfum barnsins , ekki eingöngu á því hvort formleg greining liggur fyrir. Stuðningurinn þarf að taka mið af barninu Sérstakur stuðningur getur samkvæmt reglugerð falist í aðlögun námsmarkmiða, námsgagna, námsaðstæðna eða kennsluaðferða. Umfang og fyrirkomulag stuðningsins á að ráðast af þörfum barnsins. Í skólastarfi getur stuðningur við barn sem þarf aðstoð vegna tal- eða málþroskaröskunar til dæmis falist í: skýrum og hnitmiðuðum fyrirmælum, sjónrænum stuðningi samhliða töluðu máli, meiri tíma til að vinna úr upplýsingum og svara, markvissri vinnu með orðaforða og hugtök, endurtekningu og upprifjun, að upplýsingum sé miðlað á fleiri en einn hátt, aðlögun að því hvernig barnið fær tækifæri til að sýna þekkingu sína. Þetta eru dæmi um leiðir sem geta nýst. Stuðningur þarf alltaf að taka mið af stöðu og þörfum hvers barns. Rétturinn snýst ekki bara um bóklegt nám Tal og mál gegna mikilvægu hlutverki í öllu skólastarfi. Þau nýtast ekki aðeins við lestur, ritun og annað nám heldur einnig í samtölum, hópavinnu, leik og félagslegum samskiptum. Barn getur því þurft stuðning til að skilja það sem fram fer, koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka virkan þátt í skólasamfélaginu. Í reglugerð um skólaþjónustu er sérstaklega lögð áhersla á að nemendur fái þann stuðning og þá námsaðstoð sem þeir þurfa til að geta tekið virkan þátt í skólastarfi. Foreldrar eiga að vera virkir þátttakendur Foreldrar geta sjálfir óskað eftir því að stuðningsþarfir barnsins séu metnar og komið beiðni um sérstakan stuðning á framfæri við umsjónarkennara eða skólastjórnendur. Þeir geta einnig óskað eftir athugun, greiningu og ráðgjöf frá skólaþjónustu sveitarfélagsins. Slíkar athuganir eiga að fara fram í samráði við foreldra og með samþykki þeirra, og foreldrar eiga að fá upplýsingar um niðurstöðurnar. Það er því eðlilegt að foreldrar spyrji: Hvernig hafa stuðningsþarfir barnsins verið metnar? Hvaða stuðning fær það í daglegu skólastarfi? Hvaða markmið hefur stuðningurinn? Hvernig verður fylgst með því hvort hann skili árangri? Hvenær verður staðan metin aftur? Þegar barn þarf sérstakan stuðning Ekki þurfa öll börn sem eru með tal- eða málþroskaröskun einstaklingsnámskrá. Það ræðst af stuðningsþörfum barnsins og því hvernig stuðningurinn er skipulagður. Þegar barn fær sérstakan stuðning samkvæmt reglugerð um stuðning við nemendur skal gera rökstudda einstaklingsnámskrá. Hún á að byggjast á stöðu barnsins í námi og þroska og vera endurskoðuð reglulega í samstarfi við foreldra og, eftir því sem unnt er, í samráði við barnið sjálft. Hvað með talmeinafræðing? Barn fær ekki sjálfkrafa ákveðinn fjölda tíma hjá talmeinafræðingi í skóla vegna þess að það hefur fengið greiningu á tal- eða málþroskaröskun. Ef barnið þarf sérhæfða aðstoð eða þjálfun til að skólagangan gangi sem best eiga foreldrar og skóli hins vegar að ræða hvernig þeirri þörf verði mætt og hvort leita þurfi til skólaþjónustu eða annarra sérfræðinga. Reglugerð um skólaþjónustu gerir ráð fyrir samstarfi skóla og annarra sérfræðinga og að sveitarfélög stuðli að því að regluleg þjálfun sem nemendur þurfa fari sem mest fram innan skólans. Hvaða fagaðili kemur að stuðningi barnsins ræðst af þörfum þess. Í sumum tilvikum getur aðkoma talmeinafræðings verið mikilvægur hluti af þjónustunni. Barnið á rétt á að sjónarmið þess fái að heyrast Nemendur eiga rétt á að tjá sig um mál sem þá varða og taka skal réttmætt tillit til skoðana þeirra með hliðsjón af aldri og þroska. Fyrir barn sem á erfitt með að skilja eða nota mál getur þurft að laga samskiptin að þörfum þess til að þessi réttur verði raunverulegur. Það getur til dæmis falist í skýrara orðalagi, meiri tíma til að svara, sjónrænum stuðningi eða öðrum leiðum til að auðvelda barninu að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Hvað geta foreldrar gert ef stuðningurinn dugar ekki? Ef foreldrar telja að stuðningurinn sem barnið fær sé ekki nægur er eðlilegt að óska eftir að staðan verði tekin til endurskoðunar. Foreldrar geta meðal annars: óskað eftir fundi með umsjónarkennara og skólastjórnendum, óskað eftir endurmati á stuðningsþörfum barnsins, óskað eftir skýrum upplýsingum um markmið stuðningsins og hvernig honum verður fylgt eftir, óskað eftir aðkomu skólaþjónustu og eftir atvikum frekara mati eða ráðgjöf, óskað eftir skýrri áætlun um næstu skref. Gott getur verið að setja mikilvægar beiðnir fram skriflega og halda utan um helstu niðurstöður funda. Ef nemandi fær ekki fullnægjandi aðstoð kveður reglugerð einnig á um að málinu sé hægt að vísa til nemendaverndarráðs. Foreldrar geta sjálfir óskað eftir því við skólastjóra að mál barns verði tekið þar fyrir. Skólaþjónusta getur komið að málinu Sveitarfélögum ber að tryggja aðgang að skólaþjónustu. Hlutverk hennar er meðal annars að styðja nemendur, foreldra og starfsfólk skóla, aðstoða við mat á þörfum og ráðleggja um viðeigandi úrræði. Foreldrar geta óskað eftir athugun, greiningu og ráðgjöf og skólaþjónustan á, að loknu mati eða greiningu, að vinna með skólanum að tillögum um viðeigandi stuðning og fylgja árangri hans eftir. Meginatriðið er að barnið geti tekið þátt Réttur barns til stuðnings snýst ekki um að það falli í ákveðinn flokk eða uppfylli fyrirfram ákveðin skilyrði um greiningarheiti. Það sem skiptir mestu máli er hvort barnið geti nálgast námið, skilið það sem fram fer, komið þekkingu sinni og sjónarmiðum á framfæri og tekið virkan þátt í skólastarfinu . Stuðningsþarfir barna sem hafa sömu greiningu geta verið mjög ólíkar. Þess vegna þarf skólinn að horfa á barnið sjálft, aðstæður þess og þarfir í daglegu skólastarfi. Helstu heimildir Lög nr. 91/2008 um grunnskóla. Reglugerð nr. 585/2010 um stuðning við nemendur með sérþarfir í grunnskóla. Reglugerð nr. 444/2019 um skólaþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum. Efnið er tekið saman af Málefli til almennrar fræðslu um réttindi barna í grunnskóla. Það byggir á gildandi lögum og reglugerðum en kemur ekki í stað einstaklingsbundinnar ráðgjafar eða lögfræðilegs mats.

August 11, 2026
Þóra Sæunn Úlfsdóttir, talmeinafræðingur og góður bakhjarl Máleflis til margra ára, ætlar að hlaupa fyrir félagið í Reykjavíkurmaraþoninu 2026. Við hvetjum ykkur til að heita á Þóru og um leið styðja við starf Máleflis. Margt smátt gerir eitt stórt. Og enn er pláss fyrir fleiri í liðinu okkar! Við hvetjum fleiri hlaupara til að hlaupa fyrir Málefli í ár Hægt er að heita á Þóru hér: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/23238-thora-saeunn-ulfsdottir

May 11, 2026
Málefli fagnar því að Froskaleikur – Skólameistarinn er nú kominn á laggirnar og opinn öllum börnum án endurgjalds. Vefleikurinn var formlega opnaður af forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í Klébergsskóla á Kjalarnesi síðasta föstudag. Málefli tók þátt í að styrkja verkefnið og óskar Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðingi og öllum sem komu að þróun leiksins innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga. Froskaleikurinn er íslenskur vefleikur sem styður við snemmtæka þjálfun í framburði, hljóðkerfisvitund, stafaþekkingu, tengingu málhljóða við bókstafi og orðaforða. Leikurinn segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl leggur á hann álög. Börnin hjálpa Hoppa að fá málið aftur með því að vinna með íslensku málhljóðin í skemmtilegum og gagnvirkum verkefnum. Að ná tökum á málhljóðum tungumálsins er mikilvægur grunnur að læsi. Snemmtæk og markviss þjálfun í hljóðkerfisvitund, framburði og orðaforða getur stutt börn í undirbúningi fyrir lestur og ritun. Froskaleikurinn er því mikilvægt framlag í flóru íslensks námsefnis og hentar bæði til notkunar heima og í skólastarfi. Málefli er stolt af því að hafa lagt verkefninu lið og hvetur félagsmenn, foreldra, kennara og fagfólk til að kynna sér Froskaleikinn og deila honum áfram. Froskaleikinn má nálgast hér: https://froskaleikur.laerumogleikum.is/ Innilegar hamingjuóskir til Bryndísar og samstarfsaðila með þetta glæsilega verkefni.
March 30, 2026
Aðalfundur Máleflis verður haldin þriðjudaginn 14. apríl kl. 20:00. Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta. Dagskrá aðalfundar verður hefðbundin aðalfundarstörf og tillaga að breytingum á lögum félagsins. Tillögur til lagabreytinga: Breytingartillaga við 4. grein – Stjórn Lagt er til að 4. grein laga félagsins verði breytt og orðist svo: grein – Stjórn Formaður skal kosinn sér til tveggja ára í senn. Auk formanns eru í stjórn tveir aðalmenn og skulu þeir kosnir til tveggja ára í senn. Jafnframt skulu kosnir tveir varamenn til eins árs í senn. Ekki skulu allir víkja úr stjórn á sama tíma og þarf því í byrjun að haga kjörtímabilum þannig að samfella haldist í stjórn. Formaður boðar fyrsta fund nýrrar stjórnar eins fljótt og auðið er og skal hann haldinn eigi síðar en tveimur vikum eftir aðalfund. Á þeim fundi skal ný stjórn skipta með sér verkum. Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Allar veigameiri ákvarðanir stjórnar skulu teknar á formlegum stjórnarfundum og skulu haldnar fundargerðir um slíka fundi. Stjórnarfundur telst ályktunarhæfur séu a.m.k. tveir stjórnarmenn mættir. Standi atkvæði á jöfnu við atkvæðagreiðslu á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns úrslitum. Verði stjórn félagsins óstarfhæf af einhverjum orsökum skal þegar í stað boðað til félagsfundar sem kýs nýja menn í stjórn í stað þeirra sem látið hafa af störfum. Stjórn félagsins er jafnframt heimilt að setja á laggirnar vinnuhópa eða nefndir til að sinna sérstökum málefnum á vegum félagsins. Greinargerð Tillagan felur í sér að fækka stjórnarmönnum félagsins í ljósi þess að um lítil hagsmunasamtök er að ræða. Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir tiltölulega stórri stjórn sem getur reynst erfitt að manna. Með breytingunni verður stjórn skipuð formanni og tveimur aðalmönnum, auk tveggja varamanna. Þetta einfalda skipulag ætti að auðvelda rekstur félagsins, auka sveigjanleika og gera auðveldara að fá fólk til starfa, án þess að draga úr virkni eða ábyrgð stjórnar. Hlekkur á zoom: https://us06web.zoom.us/j/84655893872?pwd=oybQ7e5Hp6FHTmlPzNAtQBOufKbf5a.1

January 21, 2026
Stjórn Máleflis þakkar fyrir gott samstarf á árinu sem leið. Árið 2025 var viðburðaríkt og vann félagið að fjölbreyttum verkefnum með það að markmiði að miðla fræðslu og efla umræðu á aðgengilegan og faglegan hátt. Á síðasta ári stóð Málefli meðal annars fyrir eftirfarandi verkefnum: Útgáfu veggspjalda og borðdagatala með fræðandi og hnitmiðuðu efni fyrir sérkennara og talmeinafræðinga Fyrirlestur um gervigreind og DLD Fyrirlestur um hljóðkerfisvitund Fyrirlestur um leiðir til að efla líðan og sjálfsmynd barna Dreifingu derhúfa og hvatningu til hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu Lýsingu nokkurra bygginga í fjólubláum lit og birtingu fræðsluefnis víða um borgina í tilefni DLD-dagsins Birtingu leikinnar auglýsingar á RÚV og miðlun fræðsluefnis á samfélagsmiðlum í tilefni DLD-dagsins Veitingu styrkja til útgáfu fræðandi barnaefnis, m.a. bókanna Amelía og Óliver eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur og Sigrúnu Öldu Sigfúsdóttur, Bína fer í sveit eftir Ásthildi Bj. Snorradóttur og Froskaleikurinn eftir Bryndísi Guðmundsdóttur. Við erum stolt af því sem okkur hefur tekist að gera saman og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári. Framundan eru góðir fyrirlestrar fyrir félagsmenn og efni sem ætlað er að styðja börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun. Jafnframt stendur yfir vinna við endurbætur á heimasíðu félagsins, þar sem áhersla er lögð á að bæta aðgengi að upplýsingum fyrir aðstandendur og fagfólk. Að lokum viljum við vekja athygli á því að nú hefur verið opnað fyrir styrkumsóknir og er umsóknarfrestur til 30. apríl 2026. Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á heimasíðu félagsins undir Styrkir . Nýárskveðja, Stjórn Máleflis

October 15, 2025
Rannveig Rós Ólafsdóttir, talmeinafræðingur fjallar um hljóðkerfisvitund. Rannveig fer yfir það hvað hljóðkerfisvitund er, undirþætti hennar og hvenær börn ná tökum á hverjum undirþætti fyrir sig. Einnig verður fjallað um tengsl hljóðkerfisvitundar við farsælt lestrarnám og hvaða aðferðum er hægt að beita til þess að styðja við og þjálfa upp betri færni í hljóðkerfisvitund hjá börnum.