Styrkir vegna námskeiða og útgáfu efnis
Málefli veitir einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum styrki til verkefna, námskeiðshalda og útgáfu efnis sem nýtist börnum og aðstandendum barna með tal- eða málþroskaröskun. Aðilar með þekkingu sem samræmist markmiðum Máleflis eru hvattir til að sækja um.
Umsóknartímabil og úthlutun styrkja
Málefli auglýsir eftir styrkumsóknum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl ár hvert.
Að umsóknarfresti loknum fer stjórn Máleflis yfir umsóknir og metur þær samkvæmt þeim skilyrðum sem gilda um styrki félagsins.
Niðurstöður eru tilkynntar umsækjendum eigi síðar en 31. maí.

Stjórn Máleflis ákveður úthlutun styrkja á grundvelli innsendarra umsókna og getur styrkur verið veittur til eins eða fleiri verkefna, að teknu tilliti til markmiða félagsins og heildarfjárhæðar sem til ráðstöfunar er hverju sinni.
Þegar sótt er um styrk þarf neðangreint að koma fram:
- Upplýsingar um umsækjanda, nafn, staða og menntun.
- Heiti og nákvæm lýsing á verkefninu eða námskeiðinu.
- Kostnaðaráætlun, sundurliðun verk- og kostnaðarþátta.
- Tímasetning framkvændar eða útgáfu efnis.
Merki Máleflis þarf að koma fram á öllu efni sem styrkur er veittur til. Styrkir eru greiddir eftir að greinargerð og myndum hefur verið skilað, efni sem hæft er til birtingar á miðlum Máleflis. Umsækjandi skal vera félagsmaður í Málefli og hafa greitt félagsgjöld ársins.
Umsóknir sendist á malefli@malefli.is með ofangreindum upplýsingum. Umsóknir eru teknar fyrir á stjórnarfundi og stjórn áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum.