Hvað er málþroskaröskun DLD
Vefsíðan malefli.is meðhöndlar persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Fimm atriði sem þú þarft að vita um málþroskaröskun DLD (e. Developmental Language Disorder)
- Málþroskaröskun DLD er dulin skerðing. Fólk með þessa röskun gerir fleiri villur í máli, notar einfaldari setningar eða á jafnvel erfitt með að skipuleggja samræður. Þessir erfiðleikar eru ekki alltaf augljósir þeim sem ekki hafa sérhæft sig á þessu sviði.
- Málþroskaröskun DLD kemur snemma fram hjá börnum og viðhelst fram á fullorðinsár.
- Málþroskaröskun DLD kemur fram hjá fólki um allan heim, óháð því hvaða tungumál það talar.
- Málþroskaröskun DLD er algeng. Fram hefur komið í rannsóknum að eitt af hverjum 14 börnum glími við
einkenni DLD. - Málþroskaröskun DLD þarfnast athygli. Hún getur haft áhrif á félagslega og tilfinningalega velferð
einstaklingsins og hvernig honum vegnar í lífinu, jafnt í skóla sem vinnu.
Hvað er málþroskaröskun DLD?
Málþroskaröskun DLD (Developmental Language Disorder) er taugaþroskaröskun sem hefur áhrif á það hvernig einstaklingur lærir, skilur og notar mál. Erfiðleikarnir koma fram á þroskaskeiði, eru viðvarandi og hafa það mikil áhrif á samskipti, nám eða daglegt líf að þörf getur verið á stuðningi.
DLD getur meðal annars haft áhrif á málskilning, orðaforða, málfræði og setningagerð, frásögn og hæfni til að koma hugsunum sínum skýrt á framfæri. Birtingarmyndin er einstaklingsbundin og getur breyst eftir aldri og eftir því hvaða kröfur eru gerðar til málfærni hverju sinni.
Erfiðleikarnir eru ekki alltaf augljósir. Barn getur til dæmis fylgst með því sem önnur börn gera og þannig virst hafa skilið fyrirmæli, eða átt auðvelt með hversdagslegt spjall en lent í vandræðum þegar mál verður flóknara, þegar útskýra þarf atburðarás eða þegar ný og ókunn hugtök eru notuð. Þess vegna er DLD stundum lýst sem lítt sýnilegri röskun.
Samkvæmt alþjóðlega CATALISE samkomulaginu er heitið Developmental Language Disorder, DLD, notað þegar um er að ræða viðvarandi málþroskaröskun sem hefur marktæk áhrif á daglegt líf og er ekki tengd þekktu líffræðilegu ástandi sem skýrir málvandann.
DLD í hnotskurn
- DLD hefur áhrif á það hvernig einstaklingur tileinkar sér, skilur og notar mál.
- Erfiðleikarnir eru ekki alltaf augljósir og DLD getur því farið fram hjá fólki í umhverfi barnsins.
- DLD kemur fram á þroskaskeiði og er oft viðvarandi fram á fullorðinsár, þótt birtingarmyndin geti breyst með aldri.
- DLD getur haft áhrif á nám, læsi, samskipti og þátttöku í daglegu lífi.
- Fjöltyngi veldur ekki DLD.
- DLD er algeng röskun. Í stórri breskri rannsókn á börnum við upphaf skólagöngu reyndust 7,58% barnanna vera með málröskun af óþekktum uppruna. Það samsvarar um það bil einu barni af hverjum 14.
Hvernig getur DLD birst?
DLD birtist ekki á sama hátt hjá öllum. Sumir eiga mest í erfiðleikum með að skilja mál en hjá öðrum eru erfiðleikarnir meira áberandi þegar þeir tjá sig. Hjá mörgum koma erfiðleikar fram á fleiri en einu sviði.
Málskilningur
Barn með DLD getur til dæmis átt erfitt með að skilja löng eða margþætt fyrirmæli, ný hugtök, flóknar setningar eða mikið magn munnlegra upplýsinga í einu.
Erfiðleikar með málskilning geta verið lítt sýnilegir. Yngra barn getur til dæmis lært daglegar venjur eða fylgst með því hvað önnur börn gera og þannig virst hafa skilið fyrirmæli sem það hefur í raun ekki skilið til fulls.
Orðaforði og orðheimt
DLD getur haft áhrif á það hversu auðveldlega barn lærir ný orð, festir merkingu þeirra í minni og nær í orð þegar á þarf að halda.
Barnið getur vitað hvað það vill segja en átt erfitt með að finna rétta orðið. Það getur notað almenn orð eins og „þetta“ eða „dótið“, hik getur verið áberandi eða barnið getur þurft lengri tíma til að koma hugsun sinni í orð.
Erfiðleikar með orðaforða eru vel þekktir hjá börnum með DLD. Rannsóknir á íhlutun sýna jafnframt að markviss vinna með merkingu og hljóðform orða getur bætt nám nýrra orða hjá börnum með DLD, þótt árangur og yfirfærsla séu mismunandi milli barna og verkefna.
Málfræði og setningagerð
DLD getur haft áhrif á hæfni barns til að skilja og mynda setningar. Barnið getur til dæmis notað einfaldari setningar en vænta mætti miðað við aldur, átt erfitt með ákveðna þætti málfræðinnar eða átt í erfiðleikum með að skilja flókna setningagerð.
Birtingarmynd málþroskaröskunar er háð því tungumáli sem einstaklingurinn talar. Því geta málfræðileg einkenni DLD verið mismunandi eftir tungumálum.
Frásögn og skipulag máls
Að segja frá krefst þess að einstaklingur velji mikilvægar upplýsingar, raði þeim í rökrétta röð og geri tengsl milli atburða og hugmynda skýr fyrir þeim sem hlustar.
Barn með DLD getur átt erfitt með að halda rauðum þræði, skipuleggja frásögn eða gefa nægar upplýsingar til þess að sá sem hlustar skilji hvað gerðist. Þegar barnið eldist geta þessir erfiðleikar einnig orðið sýnilegir í ritun og verkefnavinnu.
DLD getur birst á mismunandi hátt eftir aldri
Börn með DLD læra og þroskast eins og önnur börn. Málþroskaröskunin getur þó verið viðvarandi og birtingarmynd hennar breyst eftir því sem barnið eldist og kröfur um mál og samskipti verða meiri.
Á leikskólaaldri
Áhyggjur geta meðal annars vaknað ef barn byrjar seint að tala, notar færri orð en vænta má miðað við aldur, er lengi að byrja að tengja orð saman eða á erfitt með að skilja mál.
Ekki eru þó öll börn sem byrja seint að tala með DLD. Sum börn ná jafnöldrum sínum með tímanum en hjá börnum með DLD eru málþroskaerfiðleikarnir viðvarandi. Mat á ungum börnum þarf því að taka mið af heildarmyndinni og þróun málfærninnar yfir tíma.
Á grunnskólaaldri
Þegar barn byrjar í skóla aukast kröfur um málnotkun hratt. Nemendur þurfa meðal annars að fylgja munnlegum leiðbeiningum, læra ný hugtök, skilja texta, taka þátt í umræðum og koma eigin þekkingu á framfæri.
Barn með DLD getur því átt í erfiðleikum með til dæmis námsgreinahugtök, munnleg fyrirmæli, lesskilning, frásögn, ritun eða að halda utan um upplýsingar í hópavinnu.
Málþroskaröskun getur þannig haft áhrif á námslega stöðu barns þótt það hafi góða þekkingu, áhuga og styrkleika á öðrum sviðum. Í breskri þýðisrannsókn voru börn með málröskun að jafnaði líklegri en jafnaldrar til að eiga í námslegum erfiðleikum.
Á unglingsárum og á fullorðinsárum
DLD getur verið viðvarandi fram á unglingsár og fullorðinsár. Erfiðleikarnir geta þá meðal annars komið fram þegar vinna þarf úr flóknum munnlegum upplýsingum, tileinka sér sérhæfðan orðaforða, skipuleggja talað eða ritað mál eða takast á við mállega krefjandi náms- og starfsaðstæður.
Hvað veldur DLD?
Ekki er yfirleitt hægt að benda á eina ákveðna orsök DLD hjá einstaklingi. DLD er taugaþroskaröskun og rannsóknir benda til þess að erfðir og aðrir þættir sem tengjast taugaþroska komi þar við sögu. Málþroskaerfiðleikar eru einnig algengari meðal náinna fjölskyldumeðlima barna með DLD en hjá fólki almennt.
DLD stafar ekki af því að foreldrar hafi talað of lítið við barn eða lesið of lítið fyrir það.
DLD og fjöltyngi
Það að alast upp við tvö eða fleiri tungumál veldur ekki DLD. Börn með DLD geta verið eintyngd, tvítyngd eða fjöltyngd.
Hjá fjöltyngdu barni með DLD hefur röskunin áhrif á málþroska þess í öllum tungumálum sem það tileinkar sér, þótt færni barnsins geti verið mismunandi milli tungumála. Málfærni ræðst meðal annars af því hversu mikla reynslu barnið hefur af hverju tungumáli, við hvaða aðstæður það notar málið og hvaða tækifæri það hefur fengið til að tileinka sér það.
Þess vegna þarf að gæta sérstakrar varúðar við mat á málþroska fjöltyngdra barna. Erfiðleikar sem tengjast því að vera að tileinka sér nýtt tungumál eru ekki það sama og málþroskaröskun. Við mat þarf að taka mið af málreynslu barnsins og afla upplýsinga um færni þess í þeim tungumálum sem það notar, eftir því sem kostur er.
DLD, lestur og ritun
Málþroski og læsi tengjast náið. Börn með DLD eru í aukinni hættu á að eiga í erfiðleikum með lestur og ritun. Meðal annars geta takmarkaður orðaforði, erfiðleikar með málskilning og setningagerð haft áhrif á lesskilning og ritun.
DLD og lesblinda eru þó ekki það sama. Einstaklingur getur verið með DLD án lesblindu, lesblindu án DLD eða hvort tveggja. Lesblinda er meðal þeirra raskana sem geta komið fram samhliða DLD.
DLD og annar samhliða vandi
DLD getur komið fram samhliða öðrum þroskaröskunum eða erfiðleikum. CATALISE samkomulagið gerir meðal annars ráð fyrir því að DLD geti komið fram samhliða ADHD, lesblindu og öðrum taugaþroskaröskunum. Slíkur samhliða vandi útilokar því ekki sjálfkrafa DLD.
Málhljóðaröskun getur komið fram samhliða málþroskaröskun, en þetta eru tvær ólíkar raskanir sem hafa áhrif á mismunandi þætti máls. Málhljóðaröskun snýr að erfiðleikum með myndun eða skipulag málhljóða en DLD snýr að tileinkun, skilningi og notkun máls.
Fyrir fagfólk: hugtakanotkun CATALISE
CATALISE samkomulagið gerir greinarmun á DLD og málröskun sem tengist þekktu líffræðilegu ástandi eða öðru ástandi sem getur skýrt málvandann.
Þegar slíkt ástand er til staðar er frekar talað um málröskun í tengslum við það ástand en DLD. Í CATALISE eru meðal dæma um slík aðgreinandi ástand ákveðin erfðafræðileg heilkenni, skynheyrnarskerðing, einhverfa og þroskahömlun.
Aftur á móti útiloka áhættuþættir eða samhliða raskanir, svo sem ADHD eða dyslexía, ekki DLD greiningu.
Hvernig fer mat og greining fram?
Ekki er til eitt próf sem eitt og sér getur staðfest eða útilokað DLD. Mat á málþroska byggist á heildarmynd af málfærni einstaklingsins og áhrifum erfiðleikanna á daglegt líf, samskipti og nám.
Talmeinafræðingar hafa sérþekkingu á mati og meðferð tal- og málmeina. Við mat á málþroska getur meðal annars verið stuðst við þroska- og málsögu barnsins, upplýsingar frá foreldrum og kennurum, athugun á samskiptum og málnotkun, stöðluð próf, önnur málþroskaverkefni og málsýni.
Einnig getur þurft að meta heyrn eða aðra þætti í þroska barnsins eftir því sem tilefni er til.
CATALISE leggur áherslu á að ekki eigi að skilgreina málröskun eingöngu út frá einni niðurstöðu á stöðluðu prófi. Mikilvægt er jafnframt að meta hvort málþroskaerfiðleikarnir séu líklegir til að vera viðvarandi og hvort þeir hafi marktæk áhrif á daglegt líf eða námsframvindu.
Mat á málþroska á Íslandi
Í ung- og smábarnavernd heilsugæslunnar er fylgst með þroska barna. Samkvæmt upplýsingum Heilsuveru er skimað fyrir frávikum í málþroska við 18 mánaða, tveggja og hálfs árs og fjögurra ára aldur.
Ef áhyggjur vakna af málþroska barns er ekki nauðsynlegt að bíða eftir næstu reglubundnu skoðun. Foreldrar geta rætt áhyggjur sínar við heilsugæslu, leikskóla eða grunnskóla barnsins og óskað eftir að þörf fyrir frekara mat sé skoðuð.
Meðferð og stuðningur
Þarfir einstaklinga með DLD eru mismunandi. Meðferð og stuðningur þarf því að taka mið af aldri, styrkleikum, þeim þáttum málfærninnar sem valda erfiðleikum og þeim aðstæðum sem einstaklingurinn býr við.
Talmeinafræðileg íhlutun getur meðal annars beinst að orðaforða, málskilningi, málfræði og setningagerð, frásögn og öðrum þáttum málnotkunar. Hjá skólabörnum er einnig mikilvægt að horfa til þeirra mállegu krafna sem gerðar eru í námi og skólastarfi.
Samvinna heimilis, skóla og fagfólks getur skipt miklu máli. Stuðningur felst ekki aðeins í því að efla færni barnsins heldur einnig í því að gera umhverfi, kennslu og samskipti aðgengilegri.
Hvernig getum við auðveldað samskipti?
Hægt er að styðja barn með málþroskaröskun í daglegum samskiptum með því að hafa mál skýrt, gefa því nægan tíma til að vinna úr upplýsingum og svara og endurtaka eða umorða þegar þörf er á.
Myndir, teikningar, látbragð og ritaðar upplýsingar geta stutt við talað mál. Einnig er gagnlegt að ræða saman um orð, myndir, texta og atburði og gefa barninu svigrúm til að tjá sig án óþarfa pressu.
Slíkar leiðir koma ekki í stað einstaklingsbundins mats eða talmeinafræðilegrar íhlutunar þegar hennar er þörf, en geta gert samskipti og málumhverfi aðgengilegra.
DLD í skóla
Mál er undirstaða stórs hluta náms og skólastarfs. Nemendur þurfa meðal annars að skilja leiðbeiningar, læra ný orð og hugtök, fylgjast með umræðum, lesa og vinna úr texta og koma eigin þekkingu á framfæri.
Nemandi með DLD getur því þurft stuðning og aðlögun þótt erfiðleikarnir séu ekki augljósir við fyrstu sýn. Mikilvægt er að skoða hvernig málþroskaröskunin hefur áhrif á nám og þátttöku barnsins við raunverulegar aðstæður í skólanum.
Málefli hefur tekið saman sérstaka umfjöllun um réttindi barna með tal- eða málþroskaröskun í grunnskóla þar sem fjallað er nánar um stuðning og aðlögun í skólastarfi.
Hvert er hægt að leita ef áhyggjur vakna?
Ef foreldrar eða aðrir sem þekkja barn hafa áhyggjur af málþroska þess er rétt að taka þær alvarlega og leita ráðgjafar.
Á Íslandi er meðal annars hægt að ræða áhyggjur við heilsugæslu og leik- eða grunnskóla barnsins. Talmeinafræðingar hafa sérþekkingu á mati, greiningu og meðferð tal- og málmeina.
Sérstaklega er ástæða til að óska eftir nánara mati ef málþroskaerfiðleikar eru viðvarandi eða virðast hafa áhrif á getu barnsins til að skilja aðra, tjá sig, læra eða taka þátt í samskiptum.
Frekari upplýsingar á íslensku:
Fræðsluefni Máleflis
Á vef Máleflis er að finna fyrirlestra og annað fræðsluefni um málþroskaröskun DLD. Þar er meðal annars fjallað um einkenni og afleiðingar DLD, kennslu barna með DLD, stuðning við eldri börn og unglinga og ýmis úrræði fyrir foreldra og fagfólk.
Málefli hefur einnig tekið saman upplýsingar um réttindi barna með tal- eða málþroskaröskun í grunnskóla, þar sem fjallað er um stuðning, aðlögun, þátt foreldra og hvað hægt er að gera ef stuðningur dugar ekki.
Heilsuvera
Á Heilsuveru er ítarleg síða um málþroskaröskun DLD. Þar er meðal annars fjallað um algengi, mögulegar orsakir, einkenni á mismunandi aldri, greiningu, meðferð og leiðir til að styðja einstakling með DLD. Einnig eru þar upplýsingar um hvert foreldrar geta leitað ef áhyggjur vakna af málþroska barns.
Greinin var birt árið 2025 og er gagnleg almenn íslensk yfirlitsheimild fyrir foreldra, ungmenni og fagfólk.
Félag talmeinafræðinga á Íslandi, FTÍ
Á vef Félags talmeinafræðinga á Íslandi er að finna fræðsluefni um talmeinafræði og ýmis viðfangsefni sem tengjast tal-, mál- og samskiptafærni.
Félagið gefur einnig út fagtímaritið Talfræðinginn. Þar hefur meðal annars birst grein um talþjálfun unglinga með málþroskaröskun DLD og ýmis önnur fagleg umfjöllun sem getur nýst talmeinafræðingum, kennurum og öðru fagfólki.
Á vef FTÍ er jafnframt félagatal talmeinafræðinga.
Miðja máls og læsis
Miðja máls og læsis er þekkingarteymi á vegum Reykjavíkurborgar sem veitir starfsfólki skóla og frístundastarfs fræðslu og ráðgjöf um málþroska og læsi.
Á vef Miðju máls og læsis er meðal annars sérstakt efnissvæði um málþroskaröskun DLD auk fjölbreytts efnis um málþroska, orðaforða, læsi, fjöltyngi og stuðning í skólastarfi.
Miðja máls og læsis býður einnig upp á fræðslu um birtingarmynd DLD á mið- og unglingastigi og hvernig hægt er að styðja nemendur með DLD í daglegu skólastarfi.
Íslenskt upplýsingablað um DLD
Málefli hefur látið þýða upplýsingablað alþjóðlega verkefnisins RADLD, Raising Awareness of Developmental Language Disorder, yfir á íslensku. Þar eru helstu staðreyndir um DLD teknar saman á aðgengilegan hátt.
Upplýsingablaðið byggist á erlendum rannsóknum og er því rétt að líta á það sem íslenska þýðingu á alþjóðlegu fræðsluefni en ekki sem sjálfstæða íslenska rannsóknarheimild.
Heimildir
Bishop, D. V. M., Snowling, M. J., Thompson, P. A. og Greenhalgh, T. (2017). Phase 2 of CATALISE: A multinational and multidisciplinary Delphi consensus study of problems with language development: Terminology. Journal of Child Psychology and Psychiatry, 58(10), 1068–1080.
Meginheimild um alþjóðlega hugtakanotkun og skilgreiningu DLD.
Norbury, C. F. o.fl. (2016). The impact of nonverbal ability on prevalence and clinical presentation of language disorder: Evidence from a population study. Journal of Child Psychology and Psychiatry, 57(11), 1247–1257.
Ein helsta þýðisrannsóknin á algengi málþroskaröskunar. Niðurstöður hennar eru grundvöllur þess að oft er vísað til þess að um eitt af hverjum 14 börnum sé með DLD.
Heilsuvera. (2025). Málþroskaröskun DLD.
Íslenskt yfirlit um DLD, einkenni, greiningu, meðferð og stuðning.
Félag talmeinafræðinga á Íslandi. Talfræðingurinn.
Íslenskt fagtímarit um talmeinafræði. Þar er meðal annars að finna grein um talþjálfun unglinga með málþroskaröskun DLD.
National Institute on Deafness and Other Communication Disorders, NIDCD. Developmental Language Disorder.
Yfirlit um DLD, meðal annars um einkenni, orsakir, fjöltyngi, greiningu og meðferð.
American Speech-Language-Hearing Association, ASHA. Spoken Language Disorders, Practice Portal.
Faglegar leiðbeiningar og yfirlit um mat og íhlutun vegna málþroskaraskana.
Ansari, R., Chiat, S., Cartwright, M. og Herman, R. (2025). Vocabulary interventions for children with developmental language disorder: A systematic review. Frontiers in Psychology, 16.
Kerfisbundið rannsóknaryfirlit um orðaforðaíhlutun fyrir börn með DLD.
