January 21, 2026
Gleðilegt nýtt ár, kæru félagsmenn!

Stjórn Máleflis þakkar fyrir gott samstarf á árinu sem leið.
Árið 2025 var viðburðaríkt og vann félagið að fjölbreyttum verkefnum með það að markmiði að miðla fræðslu og efla umræðu á aðgengilegan og faglegan hátt.
Á síðasta ári stóð Málefli meðal annars fyrir eftirfarandi verkefnum:
- Útgáfu veggspjalda og borðdagatala með fræðandi og hnitmiðuðu efni fyrir sérkennara og talmeinafræðinga
- Fyrirlestur um gervigreind og DLD
- Fyrirlestur um hljóðkerfisvitund
- Fyrirlestur um leiðir til að efla líðan og sjálfsmynd barna
- Dreifingu derhúfa og hvatningu til hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu
- Lýsingu nokkurra bygginga í fjólubláum lit og birtingu fræðsluefnis víða um borgina í tilefni DLD-dagsins
- Birtingu leikinnar auglýsingar á RÚV og miðlun fræðsluefnis á samfélagsmiðlum í tilefni DLD-dagsins
- Veitingu styrkja til útgáfu fræðandi barnaefnis, m.a. bókanna Amelía og Óliver eftir Kristínu Björg Sigurvinsdóttur og Sigrúnu Öldu Sigfúsdóttur, Bína fer í sveit eftir Ásthildi Bj. Snorradóttur og Froskaleikurinn eftir Bryndísi Guðmundsdóttur.
Við erum stolt af því sem okkur hefur tekist að gera saman og hlökkum til áframhaldandi samstarfs á nýju ári. Framundan eru góðir fyrirlestrar fyrir félagsmenn og efni sem ætlað er að styðja börn og ungmenni með tal- og málþroskaröskun. Jafnframt stendur yfir vinna við endurbætur á heimasíðu félagsins, þar sem áhersla er lögð á að bæta aðgengi að upplýsingum fyrir aðstandendur og fagfólk.
Að lokum viljum við vekja athygli á því að nú hefur verið opnað fyrir styrkumsóknir og er umsóknarfrestur til 30. apríl 2026. Frekari upplýsingar um umsóknarferlið má finna á heimasíðu félagsins undir Styrkir.
Nýárskveðja,
Stjórn Máleflis