Styrkir

Styrkir vegna námskeiða og útgáfu efnis

​Málefli veitir einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum styrki til verkefna, námskeiðshalda og útgáfu efnis sem nýtist börnum og aðstandendum barna með tal- eða málþroskaröskun. Aðilar með þekkingu sem samræmist markmiðum Máleflis eru hvattir til að sækja um. 

Umsóknartímabil og úthlutun styrkja

Málefli auglýsir eftir styrkumsóknum tvisvar á ári. Umsóknir eru teknar til meðferðar að loknu hverju umsóknartímabili.

Fyrsta umsóknartímabil ársins 2026 er opið til og með 30. apríl 2026.

Til úthlutunar á þessu tímabili er allt að 500.000 kr. Stjórn Máleflis ákveður úthlutun styrkja á grundvelli innsendarra umsókna og getur styrkur verið veittur til eins eða fleiri verkefna, að teknu tilliti til markmiða félagsins og heildarfjárhæðar sem til ráðstöfunar er hverju sinni.

​Þegar sótt er um styrk þarf neðangreint að koma fram:

  • ​Upplýsingar um umsækjanda, nafn, staða og menntun.
  • Heiti og nákvæm lýsing á verkefninu eða námskeiðinu.
  • Kostnaðaráætlun, sundurliðun verk- og kostnaðarþátta.
  • Tímasetning framkvændar eða útgáfu efnis.

Merki Máleflis þarf að koma fram á öllu efni sem styrkur er veittur til. Styrkir eru greiddir eftir að greinargerð og myndum hefur verið skilað, efni sem hæft er til birtingar á miðlum Máleflis. Umsækjandi skal vera félagsmaður í Málefli og hafa greitt félagsgjöld ársins.

Umsóknir sendist á malefli@malefli.is með ofangreindum upplýsingum. Umsóknir eru teknar fyrir á stjórnarfundi og stjórn áskilur sér rétt til að óska eftir frekari upplýsingum.