October 15, 2025
Hljóðkerfisvitund, aðgöngumiði að árangursríku lestrarnámi
Rannveig Rós Ólafsdóttir, talmeinafræðingur fjallar um hljóðkerfisvitund.
Rannveig fer yfir það hvað hljóðkerfisvitund er, undirþætti hennar og hvenær börn ná tökum á hverjum undirþætti fyrir sig. Einnig verður fjallað um tengsl hljóðkerfisvitundar við farsælt lestrarnám og hvaða aðferðum er hægt að beita til þess að styðja við og þjálfa upp betri færni í hljóðkerfisvitund hjá börnum.