Aðalfundur Máleflis verður haldin þriðjudaginn 14. apríl kl. 20:00.
Við hvetjum alla félagsmenn til að mæta.
Dagskrá aðalfundar verður hefðbundin aðalfundarstörf og tillaga að breytingum á lögum félagsins.
Tillögur til lagabreytinga:
Breytingartillaga við 4. grein – Stjórn
Lagt er til að 4. grein laga félagsins verði breytt og orðist svo:
Formaður skal kosinn sér til tveggja ára í senn. Auk formanns eru í stjórn tveir aðalmenn og skulu þeir kosnir til tveggja ára í senn. Jafnframt skulu kosnir tveir varamenn til eins árs í senn.
Ekki skulu allir víkja úr stjórn á sama tíma og þarf því í byrjun að haga kjörtímabilum þannig að samfella haldist í stjórn.
Formaður boðar fyrsta fund nýrrar stjórnar eins fljótt og auðið er og skal hann haldinn eigi síðar en tveimur vikum eftir aðalfund. Á þeim fundi skal ný stjórn skipta með sér verkum.
Stjórnin fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Allar veigameiri ákvarðanir stjórnar skulu teknar á formlegum stjórnarfundum og skulu haldnar fundargerðir um slíka fundi.
Stjórnarfundur telst ályktunarhæfur séu a.m.k. tveir stjórnarmenn mættir. Standi atkvæði á jöfnu við atkvæðagreiðslu á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns úrslitum.
Verði stjórn félagsins óstarfhæf af einhverjum orsökum skal þegar í stað boðað til félagsfundar sem kýs nýja menn í stjórn í stað þeirra sem látið hafa af störfum.
Stjórn félagsins er jafnframt heimilt að setja á laggirnar vinnuhópa eða nefndir til að sinna sérstökum málefnum á vegum félagsins.
Greinargerð
Tillagan felur í sér að fækka stjórnarmönnum félagsins í ljósi þess að um lítil hagsmunasamtök er að ræða. Núverandi fyrirkomulag gerir ráð fyrir tiltölulega stórri stjórn sem getur reynst erfitt að manna.
Með breytingunni verður stjórn skipuð formanni og tveimur aðalmönnum, auk tveggja varamanna. Þetta einfalda skipulag ætti að auðvelda rekstur félagsins, auka sveigjanleika og gera auðveldara að fá fólk til starfa, án þess að draga úr virkni eða ábyrgð stjórnar.
Hlekkur á zoom: