Málefli fagnar því að Froskaleikur – Skólameistarinn er nú kominn á laggirnar og opinn öllum börnum án endurgjalds.
Vefleikurinn var formlega opnaður af forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, í Klébergsskóla á Kjalarnesi síðasta föstudag. Málefli tók þátt í að styrkja verkefnið og óskar Bryndísi Guðmundsdóttur talmeinafræðingi og öllum sem komu að þróun leiksins innilega til hamingju með þennan mikilvæga áfanga.
Froskaleikurinn er íslenskur vefleikur sem styður við snemmtæka þjálfun í framburði, hljóðkerfisvitund, stafaþekkingu, tengingu málhljóða við bókstafi og orðaforða. Leikurinn segir frá froskinum Hoppa sem missir málið eftir að galdrakarl leggur á hann álög. Börnin hjálpa Hoppa að fá málið aftur með því að vinna með íslensku málhljóðin í skemmtilegum og gagnvirkum verkefnum.
Að ná tökum á málhljóðum tungumálsins er mikilvægur grunnur að læsi. Snemmtæk og markviss þjálfun í hljóðkerfisvitund, framburði og orðaforða getur stutt börn í undirbúningi fyrir lestur og ritun. Froskaleikurinn er því mikilvægt framlag í flóru íslensks námsefnis og hentar bæði til notkunar heima og í skólastarfi.
Málefli er stolt af því að hafa lagt verkefninu lið og hvetur félagsmenn, foreldra, kennara og fagfólk til að kynna sér Froskaleikinn og deila honum áfram.
Froskaleikinn má nálgast hér:
https://froskaleikur.laerumogleikum.is/
Innilegar hamingjuóskir til Bryndísar og samstarfsaðila með þetta glæsilega verkefni.