Hvað er málhljóðaröskun SSD?

Nokkur atriði sem þú þarft að vita um málhljóðaröskun SSD (e. Speech Sound Disorder)

  • Málhljóðaröskun er regnhlífarhugtak yfir ólík vandamál sem geta haft áhrif á:
    • talskynjun
    • skipulag talfæranna við hljóðamyndun
    • framburð ákveðinna málhljóða eða samhljóðaklasa
  •  Málhljóðaröskun er bæði af:
    • þekktum orsökum (líffræðilegum)
      • mállegt verkstol og þvogl
      • vegna skarðs í mjúkagómi eða vegna annarra áfalla (t.d. eftir aðgerð)
      • vegna heyrnarskerðingar eða erfiðleika með heyrnræna úrvinnslu
    •  óþekktum orsökum
      • vegna skertrar skipulagsfærni talfæra
      • vegna röskunar á málhljóðakerfi

Heimild: American Speech-Language-Hearing Association. (e.d.). Speech Sound Disorders-Articulation and Phonology. https://www.asha.org/practice-portal/clinical-topics/articulation-and-phonology/#collapse_1