|
Aðalfundur Máleflis verður haldinn mánudaginn 22. apríl kl. 20:00 að Hátúni 10a (kaffistofan á fyrstu hæð, ÖBÍ).
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Svandís Ingimundardóttir skólamálafulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Ragnheiður Bóasdóttir frá Mennta- og menningarmálaráðuneytinu
munu flytja erindi um réttindastöðu barna og ungmenna með tal- og eða málþroskafrávik.
Hvor aðili flytur u.þ.b. 20 mínútna erindi.
3. Almennar umræður.
Verið velkomin.
Kaffi á könnunni og léttar veitingar.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Stjórn Máleflis
....................................................................................................... |
|
|
|
Stjórn Málefnis boðar til umræðufundar þann 26. september milli kl. 19:30 og 21:30 í Norðlingaskóla, Árvaði 3 110 Reykjavík. Fundinum er ætlað að vera vettvangur fyrir foreldra/forráðamenn barna og ungmenna með málþroskafrávik til að koma á framfæri upplifun sinni á þeirri þjónustu sem sveitafélög og ríki veita börnum þeirra. Rekumst við foreldrar á veggi í kerfinu sitt í hvoru lagi? Hvað má bæta í þjónustunni og hvað er vel gert?
Í skýrslu um stöðu barna og ungmenna með tal- og málþroskaröskun sem unnin var fyrir Mennta- og menningarmálaráðuneytið kom í ljós að þegar þjónusta við börn með málþroskafrávik var metin aðtalsvert bar á milli í svörum fulltrúa sveitafélaga annars vegar og foreldra hinsvegar, þar sem fulltrúar sveitafélaga töldu þennan málaflokk í góðum farvegi hjá sér en foreldrar upplifðu þjónustuna ófullnægjandi.
Fyrirliggjandi er þingsályktunartillaga um úrbætur á málefnum barna og ungmenna með málþroskafrávik. Stjórn Máleflis vill með þessum fundi taka saman upplifun foreldra af þjónustu við börnin og nota hana til að þrýsta enn betur á úrbætur á þessu sviði.
Dagskrá fundarins:
19:30 – 19:40 Kynning á Málefli 19:40 – 20:00 Kynning á skýrslu um stöðu barna og ungmenna með tal-og málþroskafrávik. 20:00 – 20:20 Léttar veitingar 20:20 – 20:50 Hópavinna þar sem við berum saman bækur okkar 20:50 – 21:15 Niðurstöður hópavinnu teknar saman 21:15 – 21:30 Orðið laust.)
Við hvetjum fólk til að gefa sér tíma til að mæta á fundinn og með því taka þátt í að stuðla að betri þjónustu við börn og ungmenni sem glíma við frávik í málþroska.
Stjórn Máleflis.
|
....................................................................................................... |
|
|
|